föstudagur, febrúar 10, 2006
Jæja... Er ekki kominn tími á smá blogg?? Ég held nú það!!
Það verður gaman að sjá hvort mig hafi dreymt sonna asskoti rétt fyrir júróvisjón.. Vissi sko ekki einu sinni að hún væri að taka þátt þegar ég skrifaði síðasta pistil!! Össss.. Magnaður andskoti!
Annars er voða lítið að frétta af mér.. Hef bara verið að gera mest mikið að engu síðustu daga..... Vá, hef samt alveg gert heilan helling síðan ég bloggaði síðast þegar ég fer að pæla í því!! Samt ekki séns að ég nenni að fara að telja það allt upp hér...
Hápunktarnir eru:
- Keflavík (djammið á Keflavík er þó alveg efni í heilan pistil!)
- Tökulið frá Hollandi (það hlaut að koma að því að mar yrði stjarna hehehe)
- Ný stígvél (óóóógeðslega flottt)
- Nasa (dansa meira dansa meira)
- og svo margt margt fleira...
Væri alveg ferlega til í eitt djamm eða svo þar sem síðasta helgi var sonna í rólegri kantinum þrátt fyrir að hafa kíkt út báða dagana... Það telst náttla ekki með í djammbókunum mínum ef mar er kominn heim á skikkanlegum tíma og sú var raunin báða dagana!! Frekar lélegt... Þó góðar og gildar ástæður fyrir aumingjaskapnum!! Skvízurnar mínar eru einmitt að fara að djamma í kvöld... Tvær eftir því sem ég best veit, en það er nú aldrei leiðinlegt... Þær myndu nú samt örugglega skemmta sér betur ef ég væri með.. Þið vitið.. Ég er bara svo óóóógeðslega skemmtileg!! Eeeeen mar verður víst að spara fyrir Kanarí-rí-rí;)
Back to.. nothing
Later
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:12