mánudagur, febrúar 13, 2006
Alltaf er það eitthvað!! Valentínusardagur á morgun... Ég verð bara að segja það að ég er alfarið á móti svona helvítis markaðssetningardögum fyrir blómabændur og fleiri tækifærissinna sem nærast á hugmyndasnauðum læmingjum sem þora ekki annað en að kaupa 3 rauðar rósir handa elskunni sinni því þið vitið, "það gera það allir"... Ok, kærastinn minn má alveg elda handa mér góðan mat.. Hann má alveg gefa mér blóm... Hann má alveg segja mér hvað ég er æðisleg og fullkomin (smá innskot frá mér hehe) og hann má alveg gefa mér jarðaber, súkkulaði og freyðibað... Hvenær sem er... En um leið og hann hættir að gera það "af því bara" og fer að þurfa einhverjar tilbúnar dagsetningar til að vera herramaður þá segi ég nú bara: Hvað er í eiginlega að??
I guess I´m not the overly-romantic type!
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:52