þriðjudagur, apríl 12, 2005



Ok... Ímyndið ykkur rauða Toyotu Corollu... Ímyndið ykkur hana jahh kannski ca. 1990 módel... Ímyndið ykkur hana station... Ímyndið ykkur hana með engum aftursætum... Ímyndið ykkur hana alla beyglaða og í mikilli þörf fyrir þrif og bón... Ímyndið ykkur hana alla merkta "Gluggum og Garðhúsum" í gluggunum... Ímyndið ykkur hana með SKILTI Á ÞAKINU sem segir "Gluggar og Garðhús"... Ok, er þetta komið?! Núna megið þið ímynda ykkur mig sitjandi í bílstjórasætinu, megaskvíz, nýkomin úr klippingu og litun, vel brúnkuklútuð á því með skjannahvítar tennur eftir rapid white meðferðina í gærkvöldi... Og sólgleraugu líka!!! Já kæru vinir... Vinnubíllinn verður víst "my ride" næstu dagana því bíllinn minn er í viðgerð... Vááá hvað þetta lætur mig meta hvítu þrumuna mína miklu betur!!! Ég skal aldrei blóta henni aftur...

Later


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
09:09




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....