fimmtudagur, apríl 14, 2005
Just shoot me!!
Eins og þið vitið hef ég verið að drattast um á flotta vinnubílnum mínum síðustu daga... Hann er ljótur og allt það, en það er algjört aukaatriði í pistli þessum... Það vantar nebblega aftursætin í hann. Það myndi kannski ekki skipta það miklu máli nema að ég þarf sem sagt að keyra um með dóttur mína í framsætinu, hálfspennta og ótrúlega óörugga þar frammí... Jæja, ég sem legg mikið upp úr því að hafa dóttur mína örugga í bílnum, spenni hana alltaf og fjárfesti meresegja nýlega í nýjum púða fyrir hana því hún var vaxin upp úr stólnum sínum, þarf sem sagt að skammast mín líka fyrir þetta þegar fólk horfir inn í bílinn og hugsar: "Hvernig væri nú að hugsa soldið um öryggi barnsins?!" Þetta er samt allt voða lítið mál, því ég meina, ég veit betur og þetta fólk veit ekkert um mig!! Ég hélt hins vegar að ég myndi DEYJA í morgun þegar ég renni í hlað á leikskólanum, með hana hálfspennta frammí, og sé að þar standa tvær konur að spjalla, meeeen, ég sem hélt að ég gæti kannski sloppið óséð inn í leikskólann eins og í gær... Nei nei... Þegar við erum að stíga út úr bílnum, sé ég þær ganga að okkur og hugsa: Dí, ég hélt nú að þær myndu ekkert fara að ibba gogg... Ef það hefði nú bara verið svo gott!! Þær ganga upp að mér og segja: "Við erum hérna frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg að gera könnun á ÖRYGGI BARNA Í BÍLUM bla bla bla" Ég heyrði ekkert mikið eftir þessi orð af skömm!!
Eins og ég sagði í byrjun
JUST SHOOT ME
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
10:21