fimmtudagur, apríl 07, 2005



Hér áður fyrr hafði ég stært mig af því að vera gullinbrún á brá sem brún... En nú er sagan önnur... Undanfarinn mánuð hafði ég ekki heimsótt ljósabekkinn minn neitt né fjárfest í gullnu brúnkuklútunum mínum sem höfðu glætt mig gljáandi brúnkunni... Sökum þess hafði lundarfar mitt ekki verið sem skyldi og þó nokkur kuldi og fölleiki tekið sér stað í sálartetri mínu sem og hörundi... Í gærkvöldi ákvað ég þó að hér skyldi staðar numið í pyntingum þessum og pantaði mér stefnumót við Ergo-line 2000... Við það lyftist allt mitt viðmót á hærra plan... Gullna yfirbragðið er á góðri leið með að ná fyrri styrkleika, einkum því ég fjárfesti í gullmolanum góða sem glæðir mig þessu "extra something". Þannig að kæru vinir og vandamenn: Ekki örvænta, hér eftir mun ekki verða skortur á pistlum sem þessum! The Tan is Back;)

Takk fyrir


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
10:59




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....