mánudagur, apríl 11, 2005



Ég er í rusli!! Missti af tónleikum aldarinnar á föstudaginn, að mér er sagt, og ég má sko aldrei missa af neinu... Ömurlegt!! Allir félagar mínir sem fóru hafa líka verið duglegir að láta mig vita hverju ég missti af (thanx guys!!) svo að ég fái nú örugglega bömmer... Er þetta ekki týpískt, loksins þegar ég ákveð að vera skynsöm og hanga heima í staðinn fyrir að leyfa púkanum að ráða, þá missi ég af einhverju svakalegu!! Ákvað því að skella mér smá út á laugardeginum með stelpunum, sonna til að missa nú alveg örugglega ekki af neinu fleiru... Og úr því varð eitt slappasta djamm í nokkurn tíma, ég var komin heim fyrir kl fimm!! Keypti mér meresegja pulsu á Select á leiðinni heim... Hvað er eiginlega langt síðan það gerðist síðast?!
En ég er að fara í klippingu og litun í kvöld og það er allra meina bót;)

Later


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
11:14




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....