þriðjudagur, apríl 19, 2005
Úffff... Djöfull var gaman hjá mér áðan!! Keyrði út af bílastæðinu hjá Heklu í nýja ógeðslega flotta bílnum mínum, með sólgleraugu (af því að ég er náttla megapæja á megapæjubíl og þær verða að vera með sólgleraugu hehe), og Call of the wild á fóninum (á mjög háum styrk því það eru náttla hátalar afturí og því geggjað sound í græjunum hehe)!! Ljúfa líf... Gerist ekki mikið betra en þetta:) Jú!! Á morgun þegar ég keyri heim úr vinnunni, á nýja bílnum mínum, með Gus Gus í botni vitandi að ég er að fara beina leið heim að taka mig til fyrir tónleika með snillingunum.... Dí... Er þetta raunverulegt?!
Kveðja ofan af skýi...
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:10