þriðjudagur, apríl 12, 2005



Dánarfregnir og jarðarfarir

Eftir þó nokkra baráttu, gaf hvíta þruman mín upp öndina fyrr í dag... Vil ég þakka henni fyrir samfylgdina síðastliðið ár. Þrátt fyrir óheppni með útlit og ýmsa aðra galla kom hún mér alltaf samviskusamlega á milli staða og mun ég sakna þess mjög. Kveð ég hana því með trega í hjarta...

Dagný


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
13:02




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....