miðvikudagur, september 29, 2004
Þá hafa áhrif verkfallsins officially borist í vinnuna til mín.... Ég hef nefnilega orðið vör við sívaxandi fjölda mjög svo PISST OFF mæðra sem koma hingað í búðina!! Ég sé þetta sko alveg fyrir mér: Þetta eru pottþétt sonna kjellingar sem eru vanalega heimavinnandi, og allt í lagi með það nema að núna eru þær ekki það heppnar að losna við helvítis krakkaskarann í skólann. Núna, í staðinn fyrir að geta sest niður og horft á Bold and the beautifull þegar þær eru búnar að gefa þeim morgunmat og solleiðis þurfa þær að hafa ofan af fyrir helvítunum allan fokking daginn!! Þær koma hingað niður stormandi með 3-4 krakka í eftirdragi, rjúka upp að næsta afgreiðslumanni hreyta einhverri spurningu í andlitið á honum, og ef þær eru ekki ánægðar með svarið þá ausa þær svívirðingum yfir greyið og segja svo: Drífið ykkur krakkar ég nenni ekki þessu HELVÍTIS hangsi í ykkur alltaf!!! Þarna hafa þær greinilega komið gremju sinni á framfæri og aumingja börnin geta ekki annað en staulast á eftir mömmunni og maður getur lesið í svip þeirra: Hvers á ég að gjalda... ekki er ég að biðja um hærri laun...
Kveðja úr undirheimum
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
13:34