föstudagur, september 10, 2004
Trallallallala...;)
Ég er loksins búin að heyra í mellunum mínum sem stungu af til Köben á miðvikudaginn. Ógeðslega gaman hjá þeim, búnar að finna Diesel búð (og væntanlega missa sig í henni... mission accomplished, hehe), fullt af skemmtistöðum og alles;) Í gærkvöldi voru þær á einhvejum bar og voru sko miðpunktur athyglinnar! Hösstluðu fullt var mér sagt;) Ehhmmm, enda færðu sko ekki inngang í melluklúbbinn nema að vera drop dead gorgeaus, hehe;) Annars geri ég bara ráð fyrir að þær hagi sér vel og komi heim "bearing gifts" fyrir okkur sem urðu að vera heima sökum peningaleysis... Það er samt eitthvað bogið við þetta allt saman... Þær sem fóru út eru allar í skóla, en við sem urðum að vera heima erum allar að vinna... Hver er að tala um fátæka námsmenn...?!
Svo fórum við Agnes og Kristín í bíóí gær og sáum Ken Park. Hún er rosaleg! Rétt áður en myndin byrjaði löbbuðu inn gömul hjón og það truflaði okkur alveg rosalega því að við vorum alltaf að pæla í þeim greyjunum... Þetta hlýtur bara að hafa sært blygðunarkennd þeirra...! Greyin!!! Svo lenti Agnesá þessum líka rosalega séns með einhverjum gæja sem settist við hliðina á henni... Gó Agnes!!
Jæja núna ætla ég að fara að elda fyrir okkur mæðgurnar og Agnesi... Fiskinn minn, namminamminamm;)
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
18:49