föstudagur, september 17, 2004



Pirr, pirr, pirr.......AAARRRGGGHHHHH!!!!! Ó mæ god hvð ég er fokking PIRRUÐ!!! Ég hata fólk í augnablikinu, sérstaklega fólk í síma!!! Ok, í vinnunni minni sé ég um póstverslun sem þýðir að ég sé um að taka á móti pöntunum í gegnum síma og senda fólki út á land... Það er nú ekki merkilegt í sjálfu sér, en það sem það felur í sér er að á svona dögum eins og í dag langar mig virkilega að hlaupa út öskrandi og rífandi í hárið á mér, henda mér á blautt malbikið og velta mér um emjandi: "HVAÐ HEF ÉG GERT TIL AÐ EIGA ÞETTA SKILIÐ!!!!! Helvítis djöfulsins fokking FÓLK! Það virðast allir geta fundið eitthvað að öllu, og hringt og röflað út af engu....!
Dæmi: "Góðan dag... Fyrir nokkrum árum keypti ég rauðar tátiljur með hvítum röndum á hliðunum... áttu þær ennþá?"
"Nei, því miður á ég ekki þannig, en ég á svartar, og hvítar tátiljur"
"En manstu eftir þeim?"
"Nei (hugsa: það skiptir heldur engu fokkings máli því þær eru ekki til helvítis beljan þín!!!)"
"En af hverju eigið þið þær ekki til?"
"Jahh, nú veit ég ekki (hugsa: hvað er eiginlega að?! Þú keyptir þær fyrir NOKKRUM ÁRUM, við hverju býstu helvítis fokking mellan þín!! Kauptu bara fokking hvítar eða svartar!!!)"
"Já, en ég vil þannig tátiljur"
"Því miður eigum við bara hvítar eða svartar (hugsa: Ertu eittvað fokking þroskaheft?! Hvaða helvítis máli skiptir það mig, ég á þær ekki til!!!!!!)Má ekki bara bjóða þér þannig?"
"Nei! Mér finnst þetta bara mjög lélegt að eiga ekki til þessar tátiljur, ég keypti þær hjá ykkur!"
"Já, því miður þannig er þetta bara, það hlýtur bara að vera hætt að framleiða þær (hugsa: LÁTTU MIG FOKKING VERA HELVÍTIS HERFAN ÞÍN!!! Þetta er ekki mitt fokking vandamál)"
"Já BLESS"
"Bless, bless (hugsa: og eigðu GÓÐAN FOKKING DAG NORNIN ÞÍN!!!!)"

Kveðja úr undirheimum


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:26




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....