mánudagur, september 27, 2004
Það er helvítis mánudagur í mér... Ég hata mánudaga!! Það gengur einhvern veginn allt á afturfótunum hjá mér..:( Svo er líka pínu ritstífla í gangi (gerist oftast efir helgar) Ekki nógu sniðugt sko!! Annars var alveg ógeðslega gaman á Gusgus á laugardaginn, ekki hægt að búast við neinu öðru af þessum snillingum!! Geðveik stemming og sjúklega góð tónlist. Við vorum allar mjög skrautlegar það kvöldið og brilleruðum allar á okkar sviðum... Díses!! Ég fer sko ekki nánar út í það!! Allavega hef ég ekkert annað að segja í bili....
Kveðja úr undirheimum
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:04