mánudagur, september 06, 2004



Minns er veikur í dag..:(

Ekki gaman... svaf voða lítið í nótt fyrir hausverk og magaverk... Er ennþá að drepast úr hausverk... Held að ég sé bara orðin veik... :(


Laugardagsdjamm... ;)

Við stelpurnar skelltum okkur út á lífið á laugardaginn, og skemmtum okkur sonna líka helvíti vel!! Byrjuðum kvöldið heima hjá Agnesi og vorum ansi skrautlegar!! Drukkum frá okkur allt vit og dönsuðum eins og hálfvitar.... Djöfull var gaman!! Svo einhvern tímann uppúr miðnætti eða svo, lagðist mín uppí rúm og DRAPST!! Það er ekkert smá þol sem maður hefur þessa dagana!!! Vaknaði reyndar kl. 6 og var sonna líka fersk að mín ákvað bara að skella sér í bæinn... Fór niðrá Kapital og hitti stelpurnar og skemmti mér bara konunglega!! Ótrúlegt ;) Við vorum líka ansi duglegar að taka myndir... Já soldið mikið duglegar... Allt einhverjar pósu myndir og solleiðis.... Gaman að þessu, hehe;) Þær eru allavega inná síðunni hennar Sigrúnar ef einhver hefur áhuga á að skoða þær...;)

Jæja... ætla að halda áfram að láta mér leiðast og fá mér 2 íbúfen...


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
11:31




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....