sunnudagur, september 12, 2004
Koma svo, dilla sér ;)
Jæja, þá er enn ein helgin yfirstaðin og ég held bara að ég hafi komist áfallalaust í gegnum hana.. Að mestu allavega... Við stelpurnar fórum að djamma í gær (surprise, surprise) og það var alveg geðveikislega gaman hjá okkur! Gerðum okkur bara pínu að fíbblum og drukkum líka allt of mikið, en það er nú bara fastur liður í öllum fylleríum sem við förum á... Samt sem áður geggjað stuð;) Fórum á Pravda og fengum auðvitað frítt inn bara af því að við erum svo sætar... Svo var okkur boðið inn í VIP herbergið þar sem að einhverjir kanar voru með partý og þar flaut allt í fríu áfengi. Stundum er svo greinilegt hvað mar er heppinn að vera kvenkyns... Mar getur sko nýtt sér það á margan átt, hehe;) Samt leið mér hálfpartinn eins og mellu þarna inni, því það var svo greinilegt að þessir gæjar voru bara á veiðum og þeir mældu okkur allar út og létu eins og furstar í kvennabúrinu sínu... Það voru náttla nokkrar stelpur þarna sem stóðu sig alveg í melluhlutverkinu og tóku nokkra lapdansa á spöðunum og dönsuðu uppá borðum og solleiðis... Það er alveg merkiegt hvað stelpur geta verið ótrúlega fyrirsjáanlegar! Ég er ekkert að segja að ég sé eitthvað skárri, en samt get ég sagt með stolt í hjarta að mér datt ekki til hugar að skella mér í hlutverkið... allavega ekki í þetta skiptið, hehe;) Nei, nú er ég sko bara að djóka!!
En núna ætla ég að halda áfram að vera þunn og drulla mér svo í háttinn... L8ter
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
21:48