fimmtudagur, september 16, 2004



Heyriði.... Ég er að tala um að ég þarf sko ennþá á mikilli hjálp að halda því að ekki nóg með að búðin sé að fyllast af Puma vörum þá er Hummel líka komið í hús og ég er gjörsamlega að tapa mér í geðveikinni!!! Þetta er hrikalegt!!! Ég segi nú bara sem betur fer er búið að loka Kaupáskortinu mínu (já það var víst gert í síðustu viku þar sem ég skuldaði svo svívirðilega mikla peninga vegna reikningsviðskipta minna... hver hefði trúað því..). Ef það væri ennþá lifandi þá væri ég ábyggilega búin að versla sem svarar allavega einum mánaðarlaunum því þetta eru svo geðveik föt!!! Sam er ég búin að taka frá nokkrar flíkur... Ég veit samt innst inni að ég á ekkert eftir að geta keypt þær, en mér líður samt betur að vita af þeim undir borðinu mínu... Mar má nú láta sig dreyma;)

Gaman að þessu...


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
16:11




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....