miðvikudagur, september 15, 2004



HjjjjáááállllP!!! Ég hef líklega aldrei þurft eins mikið á andlegum stuðningi að halda eins og akkúrat núna!!! Það er virkilega að eyðileggja litla sálartetrið mitt að horfa á öll þessi nýju, ógeðslega flottu og SVÍVIRÐILEGA DÝRU Puma föt streyma upp úr kössunum hérna í vinnunni minni "as we speak" og geta ekki mögulega í öllum geimi haft efni á að kaupa mér eins og eitt fokking svitaband einu sinni!!! Þetta er alveg hræðilegt...Sniff!! Ég get samt fengið smá sálarró með því að máta allt sem kemur upp... Kallarnir inná lager eru orðnir frekar mikið þreyttir á mér standandi þarna slefandi eins og einhver sjúklingur og rífa allt úr höndunum á þeim og hlaupa með það fram að næsta spegli. Þeir halda ábyggilega að ég sé alveg að missa vitið, og það er ekki langt í það held ég því þetta helvítis peningaleysi er gjörsamlega að fara með mig!!!! Af hverju getur mar ekki stundum sett helvítis raunveruleikann á "hold" og bara fengið að vera áhyggjulaus í smá stund og notið lífsins?!?! Af hverju ekki?!?! WHY?! ....svar óskast a.s.a.p.!!

Kveðja úr undirheimum...


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
16:25




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....