miðvikudagur, september 01, 2004
Happy day, pay day;)
Víííííí... Haldiði að kjellingin hafi ekki bara skellt sér í klippingu og litun í hádeginu!!! Vá hvað það var vel overdue!! Fór á stofu uppí Spöng, Zoo.is og þar var einhver stráksi sem að klippti mig. Ég held að ég fari pottþétt til hans aftur! Það er langt síðan ég hef farið í klippingu og verið alveg fullkomlega sátt. Ýkt ánægð!!! Ég skammaðist mín reyndar soldið þegar ég labbaði inn, settist í stólinn og sá svipinn á honum.... Hárið á mér var nebblega algjört DISASTER!! Margir mánuðir síðan ég fór síðast, og svo í einhverri aumingjalegri tilraun til að lappa aðeins upp á útlitið keypti ég mér pakkalit og skellti í hárið á mér um daginn og það misheppnaðist allsvakalega!!! Hárið á mér varð allt blettótt og lýstist gegt í rótina... Samt var ég sko að setja dökkbrúnt í það... Skil ekki alveg, en einhvern veginn tókst mér að aflita á mer rótina með dökkbrúnu... Gó figure...?!
Allavega, tókst honum að gera mig svonna líka sæta;)
Ég ætla samt ekkert að minnast neitt á annað sem tengist mánaðarmótum því þá fer ég bara að röfla og skammast... Nennum því ekkert núna... Núna er minns ánægður með klippinguna;)
Þar til síðar...
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
16:13