laugardagur, september 25, 2004



Í gærkvöldi átti ég æðislegt me-kvöld;) Fyrst fór ég með stelpunum að borða á Friday´s, en þegar þær voru búnar að stúta nokkrum kokteilum og megarítum þá ákvað ég að skella mér heim og hafa það næs. Ég er nebblega að vinna núna og ég ætlaði sko að sanna fyrir vinnufélögum mínum að ég gæti bara víst mætt á réttum tíma í vinnuna á laugardegi! Þegar ég kom heim, byrjaði ég á því að fara í langa sturtu og dekra smá við mig með kremum og fíneríi. Svo skellti ég mér í náttarann, smellti Gusgus á fóninn, kveikti á fullt af kertum og lá uppí sófa og hékk á netinu. Heavy næs!! Svo fór ég bara snemma í háttinn því eins og áður sagði ætlaði ég að mæta á réttum tíma í vinnuna! Það tókst nú ekki betur en svo að ég mætti klukkutíma of seint.... GÓÐ DAGNÝ, ÞÚ KANNT ÞETTA STELPA!!!

Ætla núna að fara að vinna aftur áður en einhver fattar að ég er í tölvunni....;)

later


Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:09




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....