miðvikudagur, ágúst 25, 2004



Minns er sko trött!!

Hhhhjjjááálp!!! Ég er að deyja úr þreytu sko... Snillingurinn sjálfur, ehemm ég sem sagt, svaf klukkutíma yfir mig í morgun... ANNAN DAGINN Í RÖÐ!!! Halló, hvað er eiginlega að mér?? Það er mér bara algjörlega ómögulegt að fara að sofa á skikkanlegum tíma og svo er ég alltaf dauðþreytt alla daga! Ótrúlega sniðugt... Svo á ég ekki einu sinni vekjaraklukku og vekjarinn á símanum virkar ekki þannig að það er svona nokkurn veginn hægt að bóka það að ég er ekkert að fara að vakna neitt tímanlega þar til ég kaupi mér vekjaraklukku... Hvernig væri það nú?? Ég hlýt að geta fundið þannig tól í Nóatúni eða 11-11... Þá get ég sko notað Kaupás kortið mitt, hehe;) Það er alveg stórsniðugt helvíti þetta kort!! Reyndar er ég alveg á góðri leið með að setja mig á hausinn með því, en það er allt í lagi...:/ Maður er svo sem vanur því..;)

Annars er ekkert merkilegt að gerast hjá mér þessa stundina... Bara alltaf jafn gaman að vinna í Intersport og solleiðis... Ég notaði sko hádegið mitt til að skoða atvinnuauglýsingarnar og það eru bara engar góðar vinnur í boði... Ég ætla sko ekki að fara úr öskunni í eldinn og fara að vinna hjá Kjöti og Fiski, Gullnesti eða einhverju álíka... Nehei, ég hef sko ákveðinn standard! Ef einhver veit um vinnu þar sem vinntíminn er 9-17, launin ca 500000 (þá ætti ég kannski að geta borgað alla mína reikninga og solleiðis..), ekkert voða mikil ábyrgð, já og plís einhver vinna þar sem ég þarf helst ekki að tala við neina helvítis kúnna, þá megiði endilega láta mig vita! Með fyrirfram þökk ;)



Koma svo, dilla sér.. Dagný at
15:53




uptown gurl
Koma svo´, dilla sér....