laugardagur, ágúst 28, 2004
Heilbrigður lífsstíll... Og PRODIGY!
Sko... Það er laugardagur og ég er ekki ónýt.. Bíddu, þetta passar ekki alveg en ég er sátt:) Það er ekki oft sem þetta gerist, en kjellingin er eitthvað að reyna að róa sig. Samt er ég viss um að ef ég ætti pening þá væri ég ekki sonna stillt... Kannski ekki alveg rétta hugarfarið á bakvið rólegheitin, en það er allt í lagi, ég hafði bara sosem gott af því að slaka aðeins á!!
Ég er samt alveg að deyja úr spenningi núna!!! Var að frétta að það væri komin dagsetning á PRODIGYTÓNLEIKANA sem ég er búin að vera að bíða eftir í allt of langan tíma!!! Vá hvað það verður geðveikt!!!! Þeir verða semsagt 15. október skv Prodigy meðlimum, en þeir sögðu í viðtali að þeir ætluðu að byrja Evróputúrinn sinn á Íslandi þann 15. október. Það er sko föstudagur og við erum að tala um að ég er í fríi daginn eftir og alles!! Þá verður sko tekið vel á því skal ég segja ykkur!!! Nýjasti diskurinn þeirra er GEÐVEIKUR og svo eru nátturlega allir gömlu diskarnir þeirra hrein SNILLD! Ég elska Prodigy;)
Þar til seinna..
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
16:33