þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Þá er þetta allt að koma
Haldiði ekki að hún Sigrún mín hafi bara tekið að sér að búa til nýtt lúkk á síðuna mína... Geggjað!! Soldið svona "Sex and the City" legt, enda eru þær ekkert smá svalar stöllurnar fjórar:) Eins og áður hefur komið fram er ég soldið hrædd við tölvur og þess vegna er ég henni mjög þakklát fyrir að hafa reddað þessu fyrir mína... Takk Sigrún elska, kiss, kiss:*
Núna reyni ég sko alltaf að stela hverri einustu mínútu sem ég get til að komast á netið... Ég var sko alltaf á kassa einu sinni og þá var ég svo mikið á netinu að það var bara lokað fyrir það... Þessi vinna sem ég er í er alveg ótrúleg.. Þeir skilja það ekki að mar verður að geta surfað aðeins á netinu til að vera með í öllu slúðrinu!! Hvað er eiginlega að þeim..? Ég allavega skil ekki þetta kjaftæði.. hehe:) Ég er í kaffi núna og næ þess vegna að skella inn örfáum línum... Er reyndar búin, þannig að ég held ég verði að fara að drífa mig fram... Annars verð ég örugglega rekin fram með svipuhöggum... Stefna fyrirtækisins er nebblega: Enginn sveigjanleiki gagnvart starfsmönnum... Ég fékk sko að vita það í gær.. Veit einhver um góða vinnu fyrir mig? Ég er sko voða dugleg og djamma ekkert mikið.. Nei DJJJÓÓK..hehe:)
Koma svo, dilla sér.. Dagný at
16:07